Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2012
11.1.2012 | 09:04
GRAL BÍÐUR FRÉTTA.
Gleðilegt nýtt ár góðir GRALvinir. Þökkum fyrir fortíðina og hlökkum til framtíðar. Við eigum að baki fjögur ár og þrjár leiksýningar; 21 MANNS SAKNAÐ, HORN Á HÖFÐI og ENDALOK ALHEIMSINS. Höfum þegar fengið styrk og stuðning frá Menningarráði Suðurnesja til að setja upp HALARASS, sem er sjálfstætt framhald HORNA Á HÖFÐI. En bíðum frétta frá LEIKLISTARRÁÐI og MENNTAMÁLARÁÐUNEYTI. Þar er ákveðið hvaða sýningar skuli styrktar til uppsetningar á þessu ári. Einnig bíðum við eftir fréttum af húsnæði í heimabænum GRINDAVÍK. Leikmyndirnar okkar eru út um allt í geymslu og það rými sem bæjaryfirvöld ætla okkur til framtíðar losnar ekki nærri strax. Fréttir af úthutun LEIKLISTARRÁÐS ættu að berast um næstu mánaðarmót (jan./feb.). Þá vitum við meira.
Tenglar
Mínir tenglar
- Salthúsið Veitingastaður
- Miði.is Miðasala á netinu
- Saltfisksetur Miðasala í síma 4201190 opin mið.-sun. frá 11.00-18.00
- Grindavíkurbær
- Bláa Lónið