12.9.2009 | 18:58
FRUMSÝNING Á MORGUN 13. SEPTEMBER KL. 14.00
GRAL frumsýnir á morgun fjölskyldu- og barnaleikritið Horn á höfði eftir Berg Þór Ingólfsson og Guðmund Brynjólfsson. Tónlist er eftir Villa naglbít og GRAL er einnig að gefa út geisladisk með leikritinu, lögunum úr sýningunni og myndasögu sem Högni Sigþórsson teiknar.
Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir verkinu, Eva Vala Guðjónsdóttir hannar leikmynd og búninga og Magnús Arnar lýsir upp ævintýrið.
Við sýnum verkið í litla leikhúsinu okkar í Hafnargötu 7a, í Grindavík, gengið inn hjá Mamma Mia.
Næstu sýningar eru
Laugardaginn 19. september kl. 14.00
Sunnudaginn 27. september kl. 14.00
Laugardaginn 3. október kl. 14.00
Miðasala er á www.midi.is, í síma 823-5477 eða hægt er að senda okkur línu á grindviska.gral@gmail.com
Almennt miðaverð er kr. 2500.-
Hlökkum mikið til að sjá ykkur í leikhúsinu!
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Tenglar
Mínir tenglar
- Salthúsið Veitingastaður
- Miði.is Miðasala á netinu
- Saltfisksetur Miðasala í síma 4201190 opin mið.-sun. frá 11.00-18.00
- Grindavíkurbær
- Bláa Lónið
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.